Björn Valur vill fara sáttaleið

Sjávarútvegsráðuneytið vinnur að breytingu á lögum um stjórn fiskveiða.
Sjávarútvegsráðuneytið vinnur að breytingu á lögum um stjórn fiskveiða. Skapti Hallgrímsson

Björn Valur Gíslason, alþingismaður VG, segir að hann vilji að farið verði að tillögum sáttanefndar í sjávarútvegi og að aflaheimildum verði úthlutað á grundvelli sáttaleiðar. Hann segist ekki vita annað en að aðrir þingmenn VG séu sömu skoðunar.

„Það var breið og góð samstaða um niðurstöður nefndarinnar og ég vil að við höldum okkur við hana,“ sagði Björn Valur sem var varaformaður sáttanefndarinnar.

Á vegum sjávarútvegsráðuneytisins er verið að vinna að frumvarp um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða. Björn Valur sagði að hann hefði verið ásamt fleirum úr baklandi stjórnarflokkanna verið skipaður til að fylgjast með þessari vinnu, en starfshópurinn hefði ekki enn verið kallaður saman.

Björn Valur sagðist líta svo á að þingflokkur VG stæði á bak við niðurstöður sáttanefndarinnar þó svo að það kunni að vera skiptar skoðanir um einstök atriði. „Ég fór ekki í þessa vinnu sem einstaklingur heldur í umboði míns flokks. Ég gerði þingflokknum grein fyrir niðurstöðunum áður en niðurstöðurnar voru gerðar opinberar og afgreiddi þær í umboði hans.“

Björn Valur sagðist ekki sjá annað en að orð Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra í áramótaávarpi sínu rímuðu ágætlega við niðurstöðu sáttanefndarinnar. „Menn geta notað öll þau orð sem þeir kunna um þessa leið. Það er m.a. hægt að kalla hana fyrningaleið. Í henni felst að úthlutun aflaheimilda samkvæmt því sem nú tíðkast verður hætt og hún verður gerð með öðrum hætti. Það er hins vegar ekki verið að innkalla aflaheimildir og bjóða þær upp með happa og glappaaðferðum eins og marga dreymir um að gera. Með þeirri leið sem starfshópurinn mælir með er verið að skapa festu í greininni til langs tíma, en það var eitt af meginmarkmiðum nefndarinnar,“ sagði Björn Vignir.

Björn Valur minnir á að fulltrúar allra stjórnmálaflokka nema Hreyfingarinnar hefðu mælt með samningaleiðinni. Það hefðu líka gert samtök sjómanna, útgerðarmenna og ASÍ. Hann sagðist því ekki sjá hvernig ætti að skapa sátt um breytingar á fiskveiðistjórnkerfinu ef að það ætti að fara einhverja aðra leið en nefndin hefði mælt með.

Björn Valur Gíslason
Björn Valur Gíslason mbl.is
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert