Fundað um Funa

Sorpbrennslustöðin Funi.
Sorpbrennslustöðin Funi. mynd/Þórður Sigurðsson

Umhverfisnefnd Alþingis fundaði í morgun um málefni sorpeyðingarstöðvarinnar Funa við Skutulsfjörð að frumkvæði Ólínu Þorvarðardóttur, þingmanns Samfylkingarinnar. Var Ólínu falið að fara yfir löggjöf sem snýr að sorpeyðingarstöðvun og mengun frá þeim.

Samkvæmt upplýsingum frá Merði Árnasyni, formanni umhverfisnefndar, voru gestir fundarins bæjarstjórinn á Ísafirði, ráðuneytisstjóri umhverfisráðuneytisins og forstjóri og sérfræðingar Umhverfisstofnunar, fulltrúar frá Matvælastofnun, heilbrigðiseftirliti Vestfjarða og Sambandi íslenskra sveitarfélaga, og formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands.

Ólínu var, ásamt nefndarritara og öðrum lögfræðingum þingsins, falið að fara yfir löggjöf sem lýtur að þessu efni og athuga hvaða þátt veilur í lögum kunni að eiga í þeim mistökum sem nú eru augljós. Ólína hyggst skila áliti um þetta á nefndarfundi fyrir lok janúarmánaðar og verður þá tekin ákvörðun um framhald af hálfu nefndarinnar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert