Hvasst er í höfuðborginni líkt og víðast hvar annars staðar og pusast sjór upp á Sæbrautina. Lögreglan hafði fengið nokkrar foktilkynningar. Meðal annars fauk skilti á bíl ofarlega við Laugarveg og skemmdist bíllinn eitthvað. Þá voru þakplötur að fjúka við Kleppsveg og Fiskislóð og þakkantur að losna við Borgartún.