Lýsir yfir vanþóknun á aðför að tjáningarfrelsi

Birgitta Jónsdóttir, Margrét Tryggvadóttir og Þór Saari eru þingmenn Hreyfingarinnar.
Birgitta Jónsdóttir, Margrét Tryggvadóttir og Þór Saari eru þingmenn Hreyfingarinnar. mbl.is

Hreyfingin lýsir yfir vanþóknun á aðför bandarískra stjórnvalda að tjáningar- og persónufrelsi þeirra einstaklinga sem hafa komið að birtingu upplýsinga sem sýna stríðsglæpi bandaríska hersins í Írak.

Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Hreyfingin hefur sent frá sér í kjölfar þess að bandarísk stjórnvöld krefjast upplýsinga um tölvunotkun Birgittu Jónsdóttur, þingkonu Hreyfingarinnar.

„Upplýsingarnar sýna svart á hvítu hvernig hermenn bandaríska hersins hafa slátrað saklausum borgurum og einnig þeim sem reyndu að koma þeim til hjálpar. Árásir þessar voru augljóslega tilgangslausar og fólu meðal annars í sér að skjóta sprengikúlum á börn.

Hreyfingin krefst þess að farið verði að lögum í þessu máli og að réttar allra Íslendinga verði gætt í hvívetna sem og annarra sem að málinu koma.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert