Allt á kafi í snjó fyrir norðan

Eins og sjá má á þessari mynd, sem tekin var …
Eins og sjá má á þessari mynd, sem tekin var í Húsavík klukkan hálf þrjú í dag er ansi vetrarlegt í bænum. mbl.is/Hafþór

Snjó hefur kyngt niður á Norðurlandi í allan dag. Samkvæmt spádeild Veðurstofu mældist snjódýpt mest á Tröllaskaga, um 73 sentímetrar. Úrkoman mun halda áfram að falla á næstu dögum.

Lögreglan á Akureyri segir að þrátt fyrir að þar hafi „kafsnjóað“ í allan dag og skyggni sé slæmt, þá hafi engin slys orðið í umferðinni. Fyrr í dag mældist snjódýpt 51 sentímetri á höfuðstað Norðurlands.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert