Efnahagsbrotadeild endurskipulögð

Embætti ríkislögreglustjóra segir, að því hafi verið gert að skera niður í rekstri um nærri 300 milljónir króna á árunum 2009-2011. Á fjárlögum fyrir yfirstandandi ár sé hins vegar gert ráð fyrir auknum fjárveitingum til eftirlitsstofnana ríkisins sem kæra mál til efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra.

Fram kemur á vef ríkislögreglustjóra, að við stofnun embættis sérstaks saksóknara hafi færst þangað reyndir starfsmenn frá efnahagsbrotadeild. Á síðasta ári höfðu margir af reyndustu starfsmönnum deildarinnar færst til þess embættis. Á sama tíma fjölgaði málum í deildinni.  

„Ríkislögreglustjóri brást við þessum aðstæðum með því að endurskipuleggja starfsemi og verklag  efnahagsbrotadeildar. Lögð var rík áhersla á að fullmanna deildina en þar eru nú 17 starfsmenn; 4 lögfræðingar, 9 lögreglumenn og 4 viðskiptamenntaðaðir starfsmenn með reynslu úr viðskiftalífinu.  Engar fjárveitingar fengust til að fjölga starfsmönnum og var kostnaði vegna þessara breytinga mætt með frekari samdrætti í öðrum rekstri embættis ríkislögreglustjóra.

Nýja starfsmenn þurfti að þjálfa jafnframt því að tekist var á við uppsafnaðan málahala. Með samstilltu átaki starfsmanna og dugnaði hefur deildin nú náð miklum árangri við að ljúka málum," segir á vefnum. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert