Einbýlishús sem Björgólfur Thor Björgólfsson átti við Fjölnisveg í Reykjavík hefur verið auglýst til sölu. Seljandi er skilanefnd Landsbanka Íslands.
Ekkert verð er sett á húsið en fasteignamat þess er tæplega 79 milljónir. Þó að húsið hafi um tíma verið í eigu Björgólfs mun hann aldrei hafa búið í húsinu.
Magnús Leopoldsson, fasteignasali hjá Fasteignamiðstöðinni, segir að þetta sé glæsilegt hús og góðum stað í borginni. Hann segir að húsið sé í góðu standi og litlar breytingar hafi verið gerðar á því síðustu árin.