Sendiherra kallaður á fund

Luis E. Arreaga, sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi.
Luis E. Arreaga, sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi.

Utanríkisráðuneytið kallaði Luis E. Arreaga, sendiherra Bandaríkjanna, á fund í ráðuneytinu í morgun vegna úrskurðar að kröfu bandarískra yfirvalda um að samskiptasíðan Twitter afhendi persónuleg gögn Birgittu Jónsdóttur alþingisþingmanns.

Fram kemur á vef utanríkisráðuneytisins, að Einar Gunnarsson, ráðuneytisstjóri, og Tómas H. Heiðar, þjóðréttarfræðingur hafi setið fundinn fyrir hönd utanríkisráðuneytisins. Þeir kölluðu eftir frekari upplýsingum um málið og lýstu yfir alvarlegum áhyggjum af því að sakamálarannsókn beindist að íslenskum þingmanni með þessum hætti. Ljóst væri að þingmaðurinn nyti þinghelgi hér á landi og að ekki yrði ekki skilið á milli þingmannsins og Alþingis.

Þá lögðu embættismennirnir áherslu á að ekki yrði frekari röskun á störfum þingmannsins, þar með talið ferðafrelsi og möguleikum á því að taka þátt í pólitískri umræðu á alþjóðavettvangi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert