Lögreglan á Húsavík segist telja að snjóflóðahætta sé í Ljósavatnsskarði en snjósöfnun hefur verið mikil þar í fjöll. Þar er iðulaus stórhríð og færð tekin að spillast mjög.
Beinir lögreglan þeim tilmælum til vegfarenda að vera ekki á ferðinni um hringveginn á þessum slóðum. sa