Orkustofnun veitti í gær Landsvirkjun leyfi til rannsókna á jarðhita, grunnvatni og efnisnámum í landi Norðurþings, Þeistareykja og Reykjahlíðar í Gjástykki.
Við undirbúning leyfisveitingarinnar var leitað umsagnar umhverfisráðuneytis, sem leitaði umsagnar Umhverfisstofnunar og Náttúrufræðistofnunar. Þá leitaði Orkustofnun einnig umsagnar sveitarfélaganna Norðurþings, Skútustaðarhrepps og Þingeyjarsveitar sem og Landeigenda Reykjahlíðar ehf.
Fram kemur í greinargerð Orkustofnunar að umhverfisráðuneytið, Umhverfisstofnun og Náttúrufræðistofnun lögðust gegn því að rannsóknarleyfið yrði veitt en sveitarstjórn Þingeyjarsveitar sagði að sveitarfélagið myndi ekki leggjast gegn leyfinu.
Rannsóknarleyfið felur í sér
heimild til rannsókna á jarðhita, grunnvatni og efnisnámum á rannsóknarsvæðinu,
sem og almennra umhverfisrannsókna sem nauðsynlegar eru til að kanna áhrif
hugsanlegrar nýtingar á umræddar auðlindir, í samræmi við rannsóknaráætlun
leyfishafa.
Leyfið gildir frá 10. janúar 2011 til 31. desember
2013.
Leyfið felur ekki í sér heimild til nýtingar á jarðrænum auðlindum
á rannsóknarsvæðinu. Komi til nýtingar þarf Landsvirkjun að sækja um sérstakt
virkjunarleyfi og/eða nýtingarleyfi og ná samkomulagi við umráðahafa réttinda á
svæðinu um endurgjald fyrir auðlindina eða afla sér eignarnámsheimildar.