Þæfingsfærð er inn í Eyjafirði á Norðurlandi eystra. Ófært er í Ólafsfjarðarmúla og er verið að skoða aðstæður að sögn Vegagerðarinnar. Ófært er í Víkurskarði og Ljósavatnsskarði en þar féll snjóflóð og er verið að kanna aðstæður.
Ófært er á Mývatnsöræfum og verið að skoða Þungfært er á Öxnadalsheiði og verið að hreina. Snjóþekja er með ströndinni austur á Reyðarfjörð en ófært á Hálsum og verið að moka. Mokstur er hafin á öllum leiðum.
Á Austurlandi er þungfært á Vopnafjarðarheiði og þæfingsfærð á Möðrudalsöræfum en mokstur stendur yfir. Snjóþekja á
flestum leiðum og mokstur hafin. Snjóþekja og snjókoma er á Fjarðarheiði.
Á Suðausturlandi er hálka austan við Höfn en autt þar fyrir vestan.
Vegir á Suðurlandi eru greiðfærir þó eru hálkublettir á nokkrum leiðum í uppsveitum.
Á Vesturlandi er hálka er á Holtavörðuheiði. Hálkublettir eru í Bröttubrekku og flestum öðrum leiðum.
Á Vestfjörðum er þungfært á Gemlufallsheiði og Steingrímsfjarðarheiði og verið að moka. Þæfingsfærð er í Ísafjarðardjúpi og um Þröskulda og verið að moka, Á öðrum leiðum er snjóþekja eða hálkublettir og skafrenningur og verið að moka. Ófært er á Klettshálsi en mokstur hafin.
Á Norðurlandi vestra er hálka á öllum leiðum í Húnavatnssýslum og norður úr. Hálka og éljagangur er á Þverárfjalli og Vatnsskarði. Snjóþekja er á flestum öðrum leiðum en ófært á Siglufjarðarvegi og unnið er að mokstri.