Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu slökkti þrjá minniháttar gróðurelda í dag.
Einn þeirra var við Sjómannaskólann í Reykjavík, annar við Lyngbarð í Hafnarfirði og sá þriðji í bryggjuhverfinu í Garðabæ.
Litlar skemmdir hlutust af eldunum og gekk greiðlega að slökkva þá.