Handboltaunnendur söfnuðust víða saman í dag til að fylgjast með „strákunum okkar“ keppa við Ungverja. Nokkur hópur handboltaunnenda fylgdist með leiknum á Players í Kópavogi en þar var hægt að orfa á leikinn líkt og á fleiri veitingahúsum.
Þá söfnuðust handboltaáhugamenn saman á vinnustöðum, í skólum og víðar til að horfa á útsendinguna.