Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra sendi bæði útgerðarmönnum og Evrópusinnum tóninn á fundi Reykjavíkurfélaga ríkisstjórnarflokkanna á Grand hótel í dag, þegar hann tæpti á Evrópumálunum í samhengi við sjávarútvegsmálin.
Fundurinn var um fiskveiðiauðlindina í almannaeign.
„Við skulum átta okkur á því að breytingar á fiskveiðistjórnuninni og bætt umgengni um íslenska landhelgi, eru háð því meginmarkiði að Ísland fari sjálft með stjórn mála á miðunum. Þrátt fyrir ýmsa annmarka erum við þar í fremstu röð og yfirráð okkar yfir miðunum eru án nokkurs vafa grundvöllur þeirrar velsældar sem hefur skapast og vaxið allt frá því landið féll fullveldi árið 1918,“sagði Jón.
Hann sagði jafnframt að fólk skyldi gæta sín á því að tala ekki tungum tveim í þessum málum. „Það gera þeir menn sem vilja ganga svo langt að tryggja séreignarhald sinna eigin fyrirtækja á miðunum en tala einnig um að við þurfum að halda fullveldi og yfirráðum þjóðarinnar yfir sömu auðlind.
Og hinum megin eru sömu sjónarmið, hjá þeim sem berjast fyrir því að tryggja aðkomu og eignarhald þjóðarinnar á auðlindinni en vilja um leið færa hana undir erlent stórríki og gera hana að sameign í potti þar sem Ísland hefur langt innan við 1% vægi,“ sagði Jón og fór nokkur kliður um salinn.
Sagði Jón að fólk skyldi ekki láta glepjast af gylliboðum þótt þau heiti nöfnum eins og „hlutfallslegur stöðugleiki í fiskveiðum.“