Á Suðurlandi eru hálkublettir á Sandskeiði og á leiðinni frá Selfossi og austur að Markarfljóti. Á Vesturlandi er víða nokkur hálka en snjóþekja eða krap á fáeinum vegum. Það er snjóþekja, krap eða hálka á flestum vegum á Vestfjörðum. Þæfingsfærð og skafrenningur eru á Þröskuldum og Steingrímsfjarðarheiði.
Á Norðurlandi er hálka á flestum leiðum en þæfingsfærð er fyrir Vatnsnes. Éljagagnur er í Ljósavatsskarði og á Hófaskarðsleið. Hálka er á flestum vegum á Austurlandi en þæfingur er á Vopnafjarðarheiði og Vatnsskarð eystra ófært. Vegir á Suðausturlandi eru hins vegar auðir.
Mjög víða á láglendi hafa vegir náð að blotna og vindur á landinu verður hægur áfram. Staðbundið mun létta til og þá frystir við veg með kvöldinu og varasöm ísing getur myndast. Einkum á þetta við á vegum norðanlands og sums staðar á Vesturlandi, en einnig á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og fyrir austan fjall.
Nauðsynlegt er að vegfarendur hafi í huga að víða er ekki mokstur, eða
önnur þjónusta á vegum, á kvöldin og nóttunni. Raunar eru sumir vegir
ekki í þjónustu nema fáa daga í viku. Upplýsingar um þjónustutíma eru á
vef Vegagerðarinnar og í síma 1777.