Lögreglan í Borgarnesi stöðvaði bifreið undir Akrafjalli á fimmta tímanum í morgun vegna gruns um að verið væri að aka undir áhrifum.
Í bifreiðinni voru tveir karlmenn, tæplega tvítugir. Við leit fundust kannabisefni í fórum þeirra og í bílnum.
Þeir munu ekki hafa komið áður við sögu lögreglu.