Karl og kona um þrítugt eru í haldi lögreglu vegna alvarlegrar líkamsárásar fyrir utan skemmtistaðinn Players í Kópavogi í nótt. Karlinn var handtekinn á vettvangi í nótt en konan var tekin höndum í morgun. Þau hafa ekki gengist við að hafa tekið þátt í árásinni.
Fórnarlamb árásarinnar var karlmaður á fimmtugsaldri. Hann liggur nú Landspítalanum með alvarlega höfuðáverka. Hann barinn og sparkað var í höfuð hans liggjandi. Hann er ekki lengur talinn í lífshættu. Talið er að fjórir til fimm hafi tekið þátt í árásinni.
Yfirheyrslur yfir vitnum standa nú yfir.