Ekið á hreindýr á hringvegi

Mynd úr myndasafni.
Mynd úr myndasafni. Friðrik Tryggvason

Ekið var á hreindýr um klukkan níu í morgun á hringveginum, til móts við Háreksstaði, á svonefndri Háreksstaðaleið.

Að sögn lögreglunnar á Egilsstöðum urðu engin slys á fólki, en hreindýrið drapst. Bíllinn, sem er jeppi, skemmdist töluvert.

Mikil hálka mun vera á svæðinu, þarna er nú nokkuð af hreindýrum og beinir lögregla þeim tilmælum til vegfarenda að fara með gát.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert