Mótmælendur kveiktu elda á Austurvelli á sjöunda tímanum í kvöld. Lögregla slökkti þá jafnóðum og engar skemmdir hlutust af.
Að sögn Harðar Jóhannessonar, aðstoðarlögreglustjóra í lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, voru á bilinu 50 - 100 manns eftir í hópnum um klukkan hálf sjö í kvöld.