Ásbjörn Óttarsson þingmaður, sem situr í fjárlaganefnd, segist ekki telja að Icesave-málið verði afgreitt úr nefndinni í þessari viku.
„Við hittum slitastjórnina annað kvöld [í kvöld] og við tölum okkur svo saman á þriðjudag og miðvikudag um næstu skref. Ég tel ekki líklegt að málið verði klárað í þessari viku í nefndinni.“
Alþingi tekur aftur til starfa í dag að loknu hléi. Að loknum þingfundi hefst fundur í fjárlaganefnd.