Umferðarslys varð á Hringbrautinni í Reykjavík á tólfta tímanum í dag. Strætisvagn og jeppi rákust á og var ökumaður jeppans fluttur á slysadeild. Ekki er talið að hann sé mikið slasaður.
Slysið varð undir brúnni við suðurenda Snorrabrautar en loka þurfti fyrir umferðinni þar í kjölfarið. Umferðinni er nú beint inn á gömlu Hringbrautina.