Forsætisráðherra segir dapurlegt að einu réttarhöldin í tengslum við hrunið sem eitthvað kveði að, séu vegna níumenninganna svokölluðu. Það sé fráleitt að fólkið hafi gegnt einhverju lykilhlutverki í því erfiða ástandi sem hér hafi ríkt í kjölfar hrunsins.
Þetta kemur fram á Facebook síðu forsætisráðherra.
„Mikið
finnst mér dapurlegt að einu réttarhöldin í tengslum við hrunið sem
eitthvað kveður að enn um sinn, séu vegna 9 menninganna svo nefndu. Það
er fráleitt að þetta unga fólk hafi gegnt einhverju lykilhlutverki í því
erfiða ástandi sem hér ríkti í kjölfar hrunsins eða að aðgerðir þess
hafi ógnað stjórnskipan landsins.... Ofbeldi á aldrei að líða en það voru ekki gjörðir þessa fólks sem ógnuðu þjóðinni á þessum tíma,“ skrifar Jóhanna.