Pilturinn sem framdi vopnað rán í verslun Samkaupa á Selfossi í dag gaf sig fram við lögreglu um kl. 21:00 í kvöld. Samkvæmt lögreglunni á Selfossi er hann aðeins 16 ára gamall og verður hann yfirheyrður áður en úrræði við hæfi verður fundið fyrir hann.
Krafðist pilturinn peninga í búðinni og sýndi afgreiðslustúlku hníf sem hann var með. Honum var neitað en hann greip vörur og hljóp síðan út. Lögregla leitaði hans en eins og áður segir gaf hann sig fram við lögreglumenn sem leituðu hans.