Bæjarstjórn Reykjanesbæjar segist reiðubúinn til samstarfs við innanríkisráðuneytið um hagkvæmniathugun og undirbúning þess að flytja Landhelgisgæsluna til Suðurnesja í samræmi við yfirlýsingu ríkisstjórnar Íslands.
Í ályktun, sem samþykkt var á fundi bæjarstjórnar í gær segir, að á Reykjanesi sé húsnæði, flugbrautir, góð hafnaraðstaða og stoðkerfi sem fullnægi þörfum Landhelgisgæslunnar að öllu leyti. Stórt og fullkomið flugskýli sé á Ásbrú. Þá geti Njarðvíkurhöfn strax tekið við skipaflota Landhelgisgæslunnar. Frá Reykjanesbæ sé stutt á aðalstarfssvæði Landhelgisgæslunnar, hafsvæðið í kringum Ísland.
Þá megi ætla að aukin starfsemi Landhelgisgæslunnar í kjölfar breytinga á starfsemi Varnarmálastofnunar, kalli á stærra húsnæði og nálægð við þau tæki og tól sem heyra undir hana.
„Með flutningi Landhelgisgæslunnar til Reykjanesbæjar myndi ríkisvaldið sýni í verki stuðning sinn við endurreisn atvinnulífs á Suðurnesjum auk þess að gera Landhelgisgæsluna að mun öflugri stofnun til hagsbóta fyrir sjófarendur, sjúklinga og landsmenn alla," segir í samþykkt bæjarstjórnarinnar.