Vatns- og fráveitugjöld innheimt sér

Orkuveita Reykjavíkur tók um áramótin við innheimtu vatns- og fráveitugjalda  í Reykjavík, á Akranesi og í Borgarbyggð. Hingað til hefur verið greitt fyrir þjónustuna með fasteignagjöldum sveitarfélaganna.

Álagningarseðill vegna þessara gjalda hefur verið sendur út. Verður greiðslum samkvæmt álagningunni  dreift á níu gjalddaga yfir árið og munu greiðendur fá senda greiðsluseðla með rafrænum hætti í heimabanka. Þá stendur til boða að greiða gjöldin í einu lagi.

Fram kemur á heimasíðu Orkuveitunnar, að fráveitugjaldið muni taka mið af stærð húsnæðis, eins og vatnsgjaldið, en ekki fasteignamati eins og hingað til. Áhrif á einstaka gjaldendur séu misjöfn. Í Reykjavík komi þær eignir, sem hafa hátt fasteignamat miðað við fermetrafjölda, betur út úr breytingunni en þar sem matið er lágt á hvern fermetra húsnæðis.

Eigendur húsnæðis sem er minna en 200 fermetrar og fasteignamat í meðallagi geti átt von á 12% hækkun. Það eru 82% húseigna í Reykjavík. Orkuveitan segir, að almennt megi reikna með að hækkunin verði meiri á stærri eignir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert