„Ég gef mér það að sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, eins og ég og aðrir ráðherrar, hlíti fyrirmælum Alþingis.“
Þetta segir Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra um svar Jóns Bjarnasonar við spurningum ESB um aðlögun.
Í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag segist Árni Þór Sigurðsson, formaður utanríkismálanefndar, sammála svari Jóns og setur ekki út á það.