Húsleitir og handtökur á vegum embættis sérstaks saksóknara í dag eru vegna rannsóknar á millifærslum til MP banka og Straums fjárfestingabanka af reikningi Landsbankans í Seðlabanka Íslands og kaupa Landsbankans á verðbréfum af sjóðum Landsvaka eftir lokun sjóðanna.
Fram kemur í tilkynningu frá embætti sérstaks saksóknara, að umræddar millifærslur séu taldar hafa átt sér stað 6. október 2008, sama daginn og neyðarlögin svonefndu voru sett á Alþingi. Fjármálaeftirlitið tók rekstur Landsbankans yfir um nóttina.
Sérstakur saksóknari segir að til rannsóknar sé grunur um meint brot á auðgunarbrotakafla hegningarlaga í tengslum við ráðstafanir á fjármunum bankans, nánar tiltekið skilasvik. Um sé að tefla verulega fjárhagslega hagsmuni og rannsóknin tengist fjölda manns. Málunum var vísað til embættis sérstaks saksóknara með tilkynningu frá skilanefnd og slitastjórn Landsbanka Íslands í lok síðasta árs. Málin hafa verið til meðferðar síðan.
Húsleitir fóru fram á fimm stöðum í dag á höfuðborgarsvæðinu í dag en í morgun voru fjórir færðir til skýrslutöku. Yfirheyrslur hófust í morgun og er þess að vænta að þær standi fram á kvöld. Einn þeirra, sem færður var til skýrslutöku var Jón Þorsteinn Oddleifsson, sem var forstöðumaður fjárstýringar Landsbankans fyrir hrun.
Embætti sérstaks saksóknara segir, að aðgerðirnar í dag hafi verið í undirbúningi um nokkurt skeið og að 35 starfsmenn embættisins hafi tekið þátt í þeim auk lögreglumanna frá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu. Úrskurðir til leitar voru kveðnir upp við Héraðsdóm Reykjavíkur.