Tímabundinn niðurskurður

Borgarstjóri Reykjavíkur í Strætó.
Borgarstjóri Reykjavíkur í Strætó. mbl.is/Kristinn

Meirihlutinn í borgarstjórn Reykjavíkur segir að hagræðingarkrafa til Strætó bs. sé ekki meiri en í annarri viðkvæmri þjónustu. Af þeim sökum séu ekki forsendur til að draga samþykkta fjárhagsáætlun til baka. Þá segir meirihlutinn að niðurskurðurinn sé tímabundinn. 

Þetta kemur fram í bókun sem Besti flokkurinn og Samfylkingin hefur sent frá sér, og hún er svohljóðandi:

„Borgarráðsfulltrúar Besta flokksins og Samfylkingarinnar fagna því að málefni Strætó séu rædd. Mjög hollt er að skoða og endurmeta gjörðir sínar með reglulegum hætti eins og gert hefur verið síðustu daga varðandi fjárhagsáætlun Strætó BS.

Eftir nánari skoðun á þeirri áætlun er það niðurstaða meirihlutans í Borgarstjórn Reykjavíkur að  hagræðingarkrafa til strætó sé ekki meiri en í annarri viðkvæmri þjónustu s.s. leikskólum og grunnskólum. Því séu ekki forsendur fyrir því að draga samþykkta fjárhagsáætlun til baka. Jafnframt er stjórn Strætó BS. hvött til að leita allra leiða til að minnka þá þjónustuskerðingu sem hlýst af þessum aðgerðum eins og mögulegt er.

Þá vilja borgarráðsfulltrúar Besta flokksins og Samfylkingarinnar benda á að þessi niðurskurður er tímabundinn. Mikilvægt er að nota tímann á þessu ári til að skoða almenningssamgöngur í Reykjavík ítarlega og meta hvernig þeim verður best komið í framtíðinni. Þá er mikilvægt að viðræður við ríkisvaldið um aðkomu þess að eflingu almenningssamgangna verði hraðað og niðurstaða fáist sem allra fyrst.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert