Jóhannes Þór Skúlason mun taka við sem aðstoðarmaður Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar hjá Alþingi í næsta mánuði.
Aðstoðarmaður Sigmundar var áður Benedikt Sigurðsson sem lét af störfum
í desember 2010 til þess að taka við starfi sviðsstjóra samskiptasviðs
Actavis á Íslandi. Sunna Gunnars Marteinsdóttir, almannatengill, gegndi síðan stöðunni tímabundið.
Jóhannes Þór útskrifaðist sem sagnfræðingur árið 1999 og hefur starfað sem grunnskólakennari. Jóhannes starfaði síðastliðin tvö ár með InDefence hópnum.