Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar nú eigenda ýmissa óskilamuna, aðallega skartgripa, sem fundust á víðavangi.
Í tilkynningu frá lögreglunni segir, að eigendur séu vinsamlegast beðnir um að setja sig í samband við lögreglustöðina á Krókhálsi í síma 444-1190.
Tekið er fram að afhending muna fer fram gegn
framvísun staðfestingar á eignarhaldi.