Bankar brutu lög við sölu viðbótarlífeyrssparnaðar

Neytendastofa hefur komist að þeirri niðurstöðu, að Arion banki og Landsbanki hafi við sölu á viðbótarlífeyrissparnaði brotið gegn lögum um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu.

Allianz Ísland sendi Neytendastofu kvörtun vegna málsins. Snéru kvartanirnar að því, að bankarnir væri að notast við úrelt útreikniforrit frá Allianz til þess að kynna fyrir viðskiptavinum sínum, eða væntanlegum viðskiptavinum, hver kostnaðurinn væri við þjónustu Allianz samanborið við þjónustu sína.

Auk þess hafi bankarnir sent út greinargerð sem ráðgjafafyrirtæki hafi unnið fyrir Kaupþing og fjallaði um ágalla á kynningarefni Allianz. Kynningarefninu hafi hins vegar verið breytt og því ættu athugasemdirnar, sem fram kæmu í greinargerðinni, ekki lengur við.

Í niðurstöðum ákvörðunarinnar er um það fjallað að á auglýsanda hvíli mjög rík skylda til að gæta að því að allar forsendur og fullyrðingar séu réttar. Landsbankanum og Arion banka hafi því borið að ganga úr skugga um að útreikningar á sparnaði Allianz væru réttir áður en þeir voru sendir út.

Að sama skapi hefðu bankarnir átt að kynna sér efni greinargerðarinnar m.t.t. kynningarefnis Allianz. Tilgangurinn með því að senda greinargerðina gæti ekki verið annar en sá að kasta rýrð á Allianz og því væri ósanngjarnt gagnvart Allianz að senda hana út, þar sem upplýsingarnar voru ekki viðeigandi lengur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert