Fnjóská ruddi sig með miklum látum í fyrradag, með þeim afleiðingum að ófært varð um Dalsmynni um tíma og einnig lokaðist leiðin heim að bænum Nesi í Höfðahverfi.
Ekki tókst að opna veginn þangað fyrr en í gær og Laufáshólmarnir eru þaktir klakastykkjum og leirdrullu.
Eftir mikið frost á dögunum var Fnjóskáin ísi lögð en í kjölfar þess að mjög hlýnaði í veðri fóru risastór klakastykki af stað og ruddu sér leið yfir veginn fyrir neðan bæinn Skarð í Dalsmynni.