Vaka - félag lýðræðissinnaðra stúdenta við Háskóla Íslands, hefur birt framboðslista félagsins til Stúdentaráðs og Háskólaþings Háskóla Íslands árið 2011. Kosið verður 2. og 3. febrúar og fer kosningin fram á Uglunni, innra neti skólans.
Sara Sigurðardóttir leiðir lista Vöku til Stúdentaráðs en hún er 22 ára gamall stjórnmálafræðinemi frá Vestmanneyjum. Hún situr í stjórn Politika, nemendafélags stjórnmálafræðinnar. María Rut Kristinsdóttir, sálfræðinemi, leiðir lista Vöku í kosningum til Háskólaþings.