Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra mun fjalla um árangur ríkisstjórnarinnar og verkefnin framundan á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar sem fram fer í dag.
Fundurinn verður haldinn á Hallveigarstíg 1 og hefst kl. 13 með ræðu formanns flokksins, Jóhönnu Sigurðardóttur.
Hinn 1. febrúar nk. eru tvö ár frá því að Jóhanna tók við embætti forsætisráðherra. Fulltrúar úr flokknum munu greina stöðuna ásamt formanninum, að því loknu verða almennar umræður. Flokksstjórnarfundir eru opnir félögum í Samfylkingunni en kjörnir fulltrúar hafa atkvæðisrétt.