Lokað í Hlíðarfjalli vegna veðurs

Skíðað í Böggvisstaðafjalli.
Skíðað í Böggvisstaðafjalli. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson

Lokað er á skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli á Akureyri í dag vegna veðurs. 3°C hiti er á svæðinu og vindhraði um 16 metrar á sekúndu.

Þeim sem komnir eru norður með skíðin reidd um öxl má þó benda á að skíðasvæðið í Böggvisstaðafjalli á Dalvík er opið í dag frá klukkan 11 til 16.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert