Tiltölulega rólegt var í höfuðborginni í nótt. Þó var lögregla kölluð út vegna minniháttar líkamsárásar. Að sögn lögreglu virtust málavextir þeir að upp úr sauð í deilum milli tveggja manna utan við skemmtistaðinn Prikið í miðborginni.
Einhverjar stympingar urðu og var annar maðurinn fluttur á slysadeild með smávægilega áverka. Gerandinn var ekki handtekinn að sögn lögreglu. Þá voru tveir ökumenn stöðvaðir vegna gruns um ölvun við akstur. Að öðru leyti var nóttin tíðindalaus.