Síðastliðin áramót gengu í gildi lög þess efnis að fólki, sem er yngra en 18 ára, eru óheimil afnot af sólarlömpum, í öðrum tilgangi en læknisfræðilegum.
Að sögn forsvarsmanna nokkurra sólbaðsstofa sem haft var samband við, hefur aldurstakmarkið ekki mikil áhrif haft á reksturinn en eftirspurn eftir svokallaðri brúnkusprautun hefur aukist verulega.
Borið hefur á því að foreldrar hafi haft samband við sólbaðsstofur og lýst yfir óánægju sinni með þetta aldurstakmark, þeir vilja að börn þeirra fái að stunda ljósabekki að vild, óháð aldri.