Þau ummæli Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra að órólega deildin svokallaða sé að „leika sér að eldinum“ með andstöðu við stjórnina í mikilvægum málum bera hvorki vott um góða dómgreind né sanngirni, að mati Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra.
Jóhanna lét þessi orð falla á flokksstjórnarfundi Samfylkingar á laugardag og sagði Steingrímur J. Sigfússon, form. VG, í kjölfarið að stjórnarliðar ættu ekki að „hræra í innyflum“ hver annars.
Ítarlega er fjallað um flokksstjórnarfund Samfylkingar og viðbrögð við yfirlýsingum forsætisráðherra í Morgunblaðinu í dag.