Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastóri LÍÚ, segir á vef samtakanna að íslenskar útgerðir greiði tæpa þrjá milljarða króna í veiðigjald á yfirstandandi fiskveiðiári.
„Veiðigjaldið nemur nú 9,5% af reiknaðri framlegð útgerðanna en slíkt gjald samsvarar um 18% af hagnaði útgerðar miðað við uppgjör Hagstofu Íslands samkvæmt árgreiðsluaðferð síðustu 10 ár. Þannig er íslenskur sjávarútvegur skattlagður sérstaklega umfram aðrar atvinnugreinar," segir Friðrik.
Hann segir, að í ályktun flokksstjórnar Samfylkingarinnar frá því á laugardag sé því haldið fram að fyrirtækin greiði ekkert.
„Það er ekki mikil reisn yfir því að forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar standi að ályktun flokkstjórnar þar sem vísvitandi er farið með rangt mál varðandi auðlindaskattinn," segir Friðrik.