Sjúkrahúsinu á Akureyri barst á síðasta ári stór erfðagjöf, eða 32 milljónir króna sem verður varið til tækjakaupa fyrir sjúkrahúsið.
Fram kemur á vef FSA að systkinin María Jóhannsdóttir og Benedikt Jóhannsson hafi ánafnað sjúkrahúsinu helming eigna sinna á móti Dvalarheimilinu Hlíð, að þeim látnum.