Tvö sýni úr kjöti og eitt sýni úr mjólk sem tekin voru í Skutulsfirði sýndi að magn díoxíns var yfir hámarksviðmiðunarmörkum. Sýni tekið úr heyrúllum reyndist einnig yfir mörkum.
Matvælastofnun (MAST) hefur fengið niðurstöður mælinga á díoxíni og díoxínlíkum efnum úr búfjárafurðum og fóðri, sem tekin voru á Vestfjörðum og í Öræfum. Þessi sýnataka fór fram í kjölfar gruns um díoxínmengun sem kom fram við sýnatöku MS í desember síðastliðnum á bæ í Skutulsfirði.
Tekin voru alls 12 sýni
af kjötafurðum frá bændum í Skutulsfirði. Af þessum 12 sýnum reyndust 2
vera eðlileg og í samræmi við niðurstöður sem fengist hafa við fyrri
rannsóknir á búfjárafurðum. Átta sýni sýndu verulega hækkun en þó undir
hámarksviðmiðunarmörkum. Tvö sýni voru yfir hámarksviðmiðunarmörkum.
Auk
þessa voru tekin 6 sýni af mjólk hjá framleiðendum. Fimm sýni voru
tekin á Vestfjörðum og eitt í Öræfum. Sýni tekið í Skutulsfirði reyndist
yfir mörkum, hin voru eðlileg. Einnig var tekið heysýni í Skutulsfirði.
Þar var um að ræða safnsýni tekið úr nokkrum heyrúllum. Þetta sýni
reyndist einnig yfir hámarksviðmiðunarmörkum.
MAST
mun tilkynna hlutaðeigandi um niðurstöður sýnatöku, þ.e. bændum,
sveitarfélagi, heilbrigðiseftirliti, Umhverfisstofnun, Sóttvarnarlækni,
afurðastöðvum og hlutaðeigandi héraðsdýralæknum. Jafnframt mun stofnunin
tilkynna hlutaðeigandi, þar sem við á, um takmarkanir varðandi nýtingu
búfjárafurða og fóðurs.
MAST mun á næstu vikum kanna með sýnatöku heilnæmi búfjárafurða í nágrenni annarra sorpbrennslustöðva.