Hættulegt athæfi við Fiskislóð

Lögreglan hafði afskipti af tveimur mönnum sem höfðu bundið snjóþotu aftan í fólksbifreið og voru að draga fólk á henni við Fiskislóð í Reykjavík. Þetta gerðist rétt eftir miðnætti við verslun BYKO.

Lögreglan segir að mennirnir hafi verið kærðir fyrir athæfið. Engan sakaði en að sögn lögreglu er ljóst að þetta hefði getað endað illa.

Þá var brotist inn í verslun við Skólavörðustíg í nótt, en farið var inn um glugga á jarðhæð. Að sögn lögreglu komst þjófurinn eða þjófarnir á brott með smáræði af peningum með sér. Málið er í rannsókn.

Að sögn lögreglu var tilkynnt um fjórar minniháttar líkamsárásir í nótt og þá voru tveir teknir fyrir ölvunarakstur í nótt.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert