Á fundi Sjálfstæðisfélags Garðabæjar í dag var samþykkt, að lýsa yfir eindregnum stuðningi við formann og forystu Sjálfstæðisflokksins í Icesave-málinu.
Fram kemur í tilkynningu, sem Sigríður Hulda Jónsdóttir, formaður Sjálfstæðisfélags Garðabæjar, skrifar undir, að fundurinn hafi verið fjölmennur.