Vegagerðin segir að það sé hálka og éljagangur á Hellisheiði og í Þrengslum. Hálkublettir séu á Reykjanesbraut. Víða á Suðurlandi sé snjóþekja og þæfingsfærð, en unnið sé að hreinsun.
Á Vesturlandi er snjóþekja og hálka. Mokstur er hafinn á Fróðárheiði.
Á Vestfjörðum er snjóþekja og hálka, Mokstur er hafin á Klettshálsi og á Steingrímsfjarðarheiði.
Á Norður- og á Norðausturlandi er víða hálka eða hálkublettir og sumstaðar éljagangur.
Á Austur og á Suðausturlandi er víða hálka eða snjóþekja og unnið er að hreinsun.
Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur á Austurlandi við mikilli umferð hreindýra.