Attac-samtökin krefjast þess að ríkisstjórnin standi við gefin loforð um að undið verði ofan af einkavæðingu orkuauðlinda landsins.
„Við teljum það vera grundvallaratriði að auðlindirnar og nýtingarréttur þeirra verði tekinn af markaði, en sé ekki fóður fyrir spákaupmenn af öllum toga, erlenda sem innlenda einkaaðila og lífeyrissjóði," segir í ályktun samtakanna.
Segja þau að með því að selja einkaaðilum nýtingarrétt á orkuauðlindum líkt og jarðvarma, sem ekki séu að fullu endurnýtanlegar, eins og gert sé í tilfelli HS Orku, sé í raun verið að selja auðlindina. Slík ráðstöfun þjóni ekki hagsmunum þjóðarinnar, sem nú, eftir efnahagshrunið, þurfi að finna sér leið til sjálfbærrar þróunar en ekki veðja á næstu hagvaxtarbólu sem knúin verði af orkusölu og ofnýtingu auðlinda.