250 milljónir í gosbætur

Margir bændur urðu fyrir búsifjum vegna eldgossins í Eyjafjallajökli.
Margir bændur urðu fyrir búsifjum vegna eldgossins í Eyjafjallajökli. mbl.is/Helgi Bjarnason

Rík­is­sjóður áætl­ar að greiða 250 millj­ón­ir í bæt­ur úr viðlaga- og bjargráðasjóði til bænda og annarra íbúa und­ir Eyja­fjöll­um sem urðu fyr­ir tjóni vegna ösk­unn­ar frá Eyja­fjalla­jök­uls­gos­inu. Þegar er búið að verja 45 millj­ón­um króna í bæt­ur. Þetta kom fram á Stöð 2.

Um 140 til­kynn­ing­ar bár­ust um tjón vegna ösku­falls frá gos­inu, allt frá Fljóts­hlíð suður að Vík í Mýr­dal. Búið er að gera upp um 30 mál og starfs­menn Viðlaga­trygg­ing­ar heim­sótt um 100 heim­ili. Viðlaga­sjóður hef­ur þegar greitt um 100 millj­ón­ir króna í bæt­ur, að því er fram kom á Stöð 2.

mbl.is
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert