Verð á eldsneyti lækkaði lítillega í gær. Hjá Olís og N1 er algengasta sjálfsafgreiðsluverðið á bensíni og dísilolíu 207,8 kr. Hjá Skeljungi er algengasta verðið á bensíni 209,5 kr. og 208,5 fyrir dísil, en verðið hefur lækkað um tvær krónur.
Hjá Atlantsolíu og ÓB er algengasta verðið 206,8 kr. og hjá Orkunni 206,7 kr. á báðum eldsneytistegundum.
Hér má fylgjast með þróun eldsneytisverðs.