Tilkynnt var um innbrot í söluturn í Starengi í Grafarvogi um klukkan þrjú í nótt.
Þjófavarnarkerfi er í söluturninum og tilkynnti öryggisfyrirtæki lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu um innbrotið.
Þjófarnir höfðu 150 karton af sígarettum og eitthvað af smámynt upp úr krafsinu.
Málið er nú í rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.