Útgáfufélagið Vefpressan ehf hefur gengið frá kaupum á öllum hlutafé í Eyjunni Media ehf, útgáfufélagi vefmiðilsins Eyjunnar. Hefur Karl Th. Birgisson verið ráðinn ritstjóri Eyjunnar.
Vefpressan rekur m.a. vefina pressan.is og bleikt.is. Fram kemur á eyjunni.is, að Björn Ingi Hrafnsson, stjórnarformaður Vefpressunnar, verður stjórnarformaður og útgefandi Eyjunnar, Arnar Ægisson verður framkvæmdastjóri, Karl Th Birgisson ritstjóri og Guðjón Elmar Guðjónsson sölu- og markaðsstjóri.