Enn aðrir 80 ökumenn teknir

Taka þarf stefnuljós þegar ekið er út úr hringtorgi.
Taka þarf stefnuljós þegar ekið er út úr hringtorgi. mbl.is/Brynjar Gauti

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hélt áfram í dag eftirliti sínu með stefnuljósanotkun ökumanna. Um 80 ökumenn voru stöðvaðir í slíku eftirliti á Vesturlandsvegi í dag, eða álíka margir og voru teknir í gær í vesturbæ Reykjavíkur. 

Fylgst var í dag með ökutækjum sem fóru um hringtorgið sem er sunnan verslunarkjarnans á Korputorgi. Allir þessir 80 ökumenn gáfu ekki stefnuljós þegar ekið var út úr hringtorgi og fá nú sekt fyrir vikið.

Einn undir áhrifum fíkniefna

Rétt eins og í gær voru líka allnokkrir ökumenn teknir sem töluðu í síma án handfrjálss búnaðar og/eða höfðu ekki ökuskírteini meðferðis. Lögreglan bætir því við í tilkynningu að einn þeirra sem var stöðvaður í dag reyndist vera undir áhrifum fíkniefna. Sá var handtekinn og fluttur á lögreglustöð en bíll viðkomandi var jafnframt ótryggður og því voru skráningarnúmerin fjarlægð.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert